Afsláttur gatnagerðargjalda

Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar þann 20. ágúst sl. var svohljóðandi samþykkt gerð:

Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkir að auglýsa sérstaklega byggingarlóðir við þegar tilbúnar götur þannig að veittur verði afsláttur allra gatnagerðagjalda vegna bygginga á lóðunum.

Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. maí 2020, en umsóknir sem berast innan umsóknarfrests verða afgreiddar af hafnar- og skipulagsnefnd eftir því sem efni standa til og gildir röð umsókn um nýtingu fyrrgreinds afsláttar.

Við úthlutun lóðanna skulu gilda ákvæði um að byggingarframkvæmdir skuli hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar hafi hlotið fokheldisvottorð innan tveggja ára. Að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðargjalda.

Lóðir sem falla undir framangreint ákvæði um afslátt eru:

·        Bogabraut – ein lóð norðan götu nr: 25.

·        Suðurvegur – þrjár lóðir austan götu nr: 5,7 og 11

·        Sunnuvegur – tvær lóðir vestan götu nr: 10 og 12

·        Ránarbraut – ein lóð norðan götu nr: 3 og fimm lóðir sunnan götu nr: 2, 4, 6, 8 og 10.

·        Oddagata – ein lóð austan götu nr: 3.

·        Hólanesvegur – ein lóð vestan götu nr: 6.

·        Skagavegur – tvær lóðir austan götu, nr: 4 og parhúsalóð nr: 6-8.

·        Bankastræti – ein lóð sunnan götu nr. 5.

Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri.