ÁHUGAFÓLK UM UPPBYGGINGU Á FERÐAÞJÓNUSTU

 

Fundur um ferðaþjónustu verður haldinn á Borginni miðvikudaginn 11. maí  næstkomandi kl. 17:15. 

Dagskrá :

  1. Fulltrúar Hólanes ehf kynna áform um byggingu hótels á Skagaströnd
  2. Formaður Ferðamálafélags A- Hún segir frá starfsemi félagsins og metur stöðu ferðamála í nágrenni Skagastrandar.
  3. Markaðsfulltrúi SSNV mun fjalla um markaðssetningu í ferðaþjónustu
  4. Fyrirspurnir og umræður

Allir sem hafa áhuga á uppbyggingu ferðaþjónustu eða standa í slíkum rekstri  eru hvattir til að mæta og kynna sér málin. Gert er ráð fyrir að fundurinn taki ekki meira en 60 mínútur.

Atvinnumálanefnd Skagastrandar