Áhugaverðir fyrirlestrar um sagnfræði

 

Málstofa um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld

í Rannsóknasetri Háskólans, Skagaströnd 7. nóvember kl. 14.

 

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og sagnfræðideild Háskóla Íslands efna til málstofu um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld. Málstofan er hluti af nám­skeiði í sagn­fræði og gera sjö sagnfræðinemar frá rannsóknum sínum um efnið. Kenn­ari námskeiðsins er Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Harpa Ásmunds­dóttir sagn­fræðinemi.

 

Málstofan hefst kl. 14 og eru allir velkomnir og frítt inn.

Átjándu aldar kökur í kaffihléinu.

 

14:00: Setning

 

14:10-14:30

Baldur Þór Finnsson: Ríkidæmi Þingeyraklausturs. Óánægður almúgi og innheimta yfirvalda

 

14:30-14:50

Þórður Vilberg Guðmundsson: Hungurdauði og hallæri í Húnavatnssýslu 1755 -1756

 

14:50-15:10

Brynhildur L. Ragnarsdóttir: Dauðamein Húnvetninga í Tjarnarsókn 1785 til 1815

 

Kaffihlé 15:10-15:40

 

15:40-16:00

Bjarni Þ. Hallfreðsson:           Fólk á Vatnsnesi.

Hvernig þróaðist byggð og félagsgerð byggðarinnar á norðanverðu Vatnsnesi á 18.öld?

 

16:00-16:20

Hafdís Líndal: Byggð og búfé í Vatnsdal

 

16:20-16:40

Linda Ösp Grétarsdóttir: Sakamál í Húnavatnssýslu á árunum 1756-1760.

Framkvæmd refsinga

 

16:40-17:00

Þórdís Lilja Þórsdóttir: Blóðskömm í Húnavatnssýslu 1720 – 1806.

Dómar og refsingar fyrir blóðskömm í Húnavatnsýslu