Álagning fasteignagjalda á Skagaströnd 2018

  

Ágætu fasteignaeigendur á Skagaströnd.

 

Álagning fasteignagjalda eru í vinnslu og verður álagning keyrð um mánaðarmót. Álagningarreglur fasteignagjalda 2018 eru aðgengilegar á heimasíðunni undir „gjaldskrár“.

 

Greiðslur fasteignagjalda:

Eins og undanfarin ár verða ekki sendir greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda nema til þeirra sem þess hafa óskað sérstaklega og gildir skráning þeirra sem þess óskuðu á síðasta ári nema nýjar upplýsingar komi fram.

Gjalddagar fasteignagjalda eru frá 1. febrúar til 1. júlí, en á smærri upphæðum eru gjalddagar 1 eða 2. (Gjalddagar á 0-5.000 kr. er 1.apríl og 5.001-10.000 skiptist í tvo gjalddaga 1. apríl og 1. maí).

 

Sorphirðugjald /sorpeyðingargjald

Vakin er athygli á að sorphirðugjald er lagt á íbúðir með fastri búsetu en einungis sorpeyðingargjald á sumarhús og íbúðir þar sem ekki er regluleg búseta. Það táknar að sorphirða fer ekki fram þar sem einungis er greitt sorpeyðingargjald. Sama gildir um þær eignir sem ekkert sorphirðu- eða eyðingargjald er lagt á eins og t.d. ferðaþjónustueignir (C-flokkur) þeir aðilar leysa sjálfir sorphirðu /sorpeyðingu fyrir sína starfsemi með samningum við þjónustuaðila eða öðrum hætti.

 

Álagningaseðlar:

Álagningarseðlar verða ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað. Hver og einn getur nálgast sína álagningarseðla á vefsíðunni www.island.is undir reitnum „mínar síður“  Innskráning er með kennitölu viðkomandi og íslykli eða rafrænum skilríkju.

 

Skrifstofa sveitarfélagsins veitir fúslega upplýsingar og aðstoð til þeirra sem þess óska.

 

Skagaströnd 30. janúar 2018

 

Sveitarstjóri