Allt flott við Fellsborg

 

 

Umhverfi Fellsborgar hefur tekið miklum stakkaskiptum að undanförnu. 

Bílastæðið hefur verið malbikað, kantsteinar steyptir, ljósastaurar settir upp, verið er að helluleggja fyrir framan innganginn, og innan skamms verða lagðar túnþökur meðfram framkvæmdasvæðinu og loks er ætlunin að mála bílastæði.

 

Bílastæðið er 2100 fermetrar að stærð, þar verður pláss fyrir  71 bíl og það verður allt upplýst.

 

Óhætt er að fullyrða að vel hefur tekist til hjá Árna Geir og samstarfsmönnum hans, en þeir eru Stefán Sveinsson, Vilhjálmur Jónsson, Gunnar Tryggvi Ómarsson og Ragnar Már Björnsson.