ÁNÆGJUVOGIN -STYRKUR ÍÞRÓTTA

 

niðurstöður rannsókna og hugleiðingar um skipulagt

 íþróttastarf fyrir börn og ungmenni

 

 

Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10.bekk.

Miðvikudaginn 30.janúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi á Blönduósi í sal Stéttarfélagsins Samstöðu Þverbraut 1 og hefst fundurinn klukkan 20:00.

 

Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.

 

 

 

Þátttaka er ókeypis og öllum heimil.