Atvinna - óskað eftir að ráða sjúkraliða til starfa

Hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa.

Um er að ræða vaktavinnu en hægt er að semja um breytilegan vinnutíma og mislangar vaktir.

Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna með öldruðum og hafi frumkvæði, samstarfsvilja, sveigjanleika og hæfni í mannlegum samskiptum. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi SFLÍ og sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 31.01.2020.

 

Upplýsingar veitir Jökulrós Grímsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 848-1801 / www.saeborg@simnet.is