Auglýsing vegna úthlutnar byggðakvóta 2008-09

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2008/2009 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 557, 25. júní 2009

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög:

  • Bolungarvík
  • Langanesbyggð (Þórshöfn, Bakkafjörður) 

Fyrir neðangreind byggðalög vísast auk reglugerðarinnar til sérstakra úthlutunarreglna í hlutaðeigandi byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 689/2009 í Stjórnartíðindum.

  • Strandabyggð (Hólmavík)
  • Stykkishólmur
  • Tálknafjarðarhreppur
  • Árneshreppur (Norðurfjörður)
  • Grýtubakkahreppur (Grenivík)
  • Dalvíkurbyggð (Dalvík, Hauganes, Árskógssandur)
  • Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
  • Sveitarfélagið Skagaströnd

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar.  Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2009.

Fiskistofa, 11. ágúst 2009.