Bæjarmálafélag stofnað á Skagaströnd

 


Hinn 28. ágúst s.l. var stofnað bæjarmálafélag sem hefur það að markmiði að vera vettvangur fyrir íbúa Skagastrandar að ræða um málefni sveitarfélagsins og að koma skoðunum sínum á framfæri við þá sem fara með yfirstjórnina.

 

Það hefur verið í umræðunni árum saman að okkur vantaði svona félagsskap og hér er hann kominn á koppinn.

 

Þessi vettvangur er fyrir alla áhugamenn, hvort sem þeir eru tengdir einhverju framboði eða engu.  Það mættu 13 manns á stofnfundinn.

 

Á fundinum voru valdir 3  til að halda utan um starfið, eins og að boða fund eða það sem til fellur.

 

Vonum að þetta verði vettvangur sem fólk vill nýta sér til að fylgjast betur með málefnum samfélagsins og hafa áhrif á.

 

Þetta er tilraunarinnar virði.   

 

Með kveðju.

 

     Bæjarmálafélag Skagastrandar

 

                           Guðmundur Erlendsson,  Guðmundur Ólafsson,

                          og  Sigríður Gestsdóttir