BioPol og HA undirrita samstarfssamning

 

 

Nýsköpunar- og sprotafyrirtækið BioPol ehf. á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri hafa með góðum árangri starfað saman í sex ár við rannsóknir í sjávarlíftækni.

 

Stefán B. Sigurðsson rektor Háskólans á Akureyri heimsótti sjávarlíftæknisetrið BioPol á Skagaströnd 6. febrúar til að endurnýja samstarfssamning stofnananna tveggja. Fyrri samningur var gerður 2007 og var til fimm ára. Því var ástæða til að skrifa undir nýjan samning í ljósi mikillar ánægju beggja aðila með samstarfið

Sjávarlíftæknisetrið BioPol sem stofnað var á Skagaströnd í september 2007 hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum sem meðal annars hafa miðað að því að kortleggja vannýtt tækifæri, til verðmætasköpunar, innan íslensks sjávarútvegs. Í dag starfa hjá félaginu átta vel menntaðir starfsmenn með fjölbreyttan bakgrunn. Á starfstíma félagsins hefur verið byggð upp fullkomin rannsóknaaðstaða.

Háskólinn á Akureyri hefur boðið upp á meistaranám í sjávarútvegs og auðlindafræðum. Kennsla í sjávarútvegsfræði hefur frá upphafi farið fram í samstarfi við innlend sjávarútvegsfyrirtæki og fyrirtæki í tengdum greinum og þeirra á meðal er BioPol á Skagaströnd.

Mikil ánægja hefur verið meðal forráðamanna og starfsmanna BioPol ehf. með samstarfið við Háskólann og sú ánægja er gagnkvæm. Í ljósi hefur nú verið gerður nýr samningur um áframhaldandi samstarf og fjallar hann einkum um rannsóknir og tækniþróun á sviði sjávarlíftækni, matvælafræði og tengdra sviða. Í því felst m.a. að skilgreina ný rannsóknaverkefni en helsti styrkleiki samstarfsins byggir á samlegð mismunandi sérfræðiþekkingar og meiri líkum á árangri með stærri rannsókna- og þróunarverkefnum.

Sameiginlega markmið beggja er að að nýta sem best sérþekkingu þá sem samningsaðilar búa yfir auk þess sem samningnum er ætlað að bæta aðgengi vísindamanna og nemenda HA að sérfræðiþekkingu og aðstöðu BioPol og aðgengi sérfræðinga BioPol að sérfræðingum HA og aðstöðu.

Í stjórn BioPol sitja fimm stjórnarmenn og þar af einn frá HA. Með þeim hætti leggur HA til verkefnisstjóra með þekkingu á sjávarlíftækni, hagnýtri örverufræði, vinnslutækni matvæla, nýsköpun og atvinnuþróun. Starfsstöð hans er við Háskólann á Akureyri en verkefnið er fyrst og fremst mótun faglegra áherslna samstarfsins og utanumhald rannsóknarverkefna. Allt frá stofnun BioPol hefur Dr. Hjörleifur Einarsson prófessor við HA sinnt þessu hlutverki.

Samningurinn tilgreinir jafnframt að HA. heldur úti stöðu sérfræðings sem staðsettur er hjá BioPol  á Skagaströnd en staðan er tilkomin vegna vinnu svokallaðar NV nefndar  sem starfaði fyrir Forsætisráðuneytið árið 2008. Í dag er það Dr. Magnús Örn Stefánsson sem starfar undir merkjum háskólans hjá BioPol. Meginviðfangsefni Magnúsar hafa verið rannsóknir á frumverur með hagnýtingu og frekari atvinnuuppbyggingu í huga. 

Ný rannsóknaaðstaða

Í tengslum við heimsókn háskólarektors var jafnframt tekin í notkun, með formlegum hætti, glæsileg viðbót við rannsóknaaðstöðu BioPol ehf. Við það tækifæri klipptu Stefán B. Sigurðsson háskólarektor og Adolf H. Berndsen stjórnarformaður BioPol á borða við inngang nýju rannsóknastofunnar. Um er að ræða aðstöðu sem sérstaklega hönnuð með það fyrir augum að geta unnið með frumuræktir við „sterilar“ aðstæður.  

 

 

Frekari upplýsingar veita:

 

Halldór G. Ólafsson

framkvæmdastjóri BioPol ehf.

Sími 896-7977

 

Dr. Hjörleifur Einarsson

Prófessor við Háskólann á Akureyri

Sími: 460-8502