Blóðsykursmælingar á Þorláksmessu

 

Lionsklúbbur Skagastrandar hefur ákveðið að bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingar í tengslum við skötuveisluna í Fellsborg á Þorláksmessu. Mælingar á blóðsykri er tiltölulega einföld mæling sem gefur til kynna            hvort fólk sé með sykursýki  eða ekki. Verkefnið er unnið í samstarfi við Heilsugæsluna á Skagaströnd. Fólk er hvatt til að nýta sér þessa þjónustu.

Með jólakveðju Lionsklúbbur Skagastrandar