Breyting Aðalskipulags

Breyting á Aðalskipulagi Skagastrandar 2010-2022

Lenging á sjóvörn við Bót

Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti 16. október 2013 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Skagastrandar 2010-2022 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í að sjóvörn við Bót verður 150 m lengri en fram kemur í gildandi aðalskipulagi. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 16. október 2013 í mkv. 1:10.000, sjá heimasíðuna www.skagastrond.is hér

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til sveitarstjóra Skagastrandar.

 

Sveitarstjóri Skagastrandar