Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi

Könnunin Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi er hluti rannsóknarverkefnis á vegum Byggðastofnunar í samstarfi við rannsóknafólk við innlenda og erlenda háskóla.

Könnuninni er ætlað að safna margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum minni byggðarlaga og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.

Þessi könnun nær til byggðakjarna með færri en tvö þúsund íbúa utan suðvestursvæðis landsins. Aðrar kannanir munu ná til annarra byggðalaga. Niðurstöður verða birtar á innlendum og erlendum vettvangi síðar á árinu. Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri stýrir rannsókninni og svarar spurningum í síma 661 6099 eða í tölvupósti thoroddur@unak.is.

Þátttaka í könnuninni er að sjálfsögðu frjáls og svarendum ber hvorki skylda til að svara einstökum spurningum eða könnuninni í heild. Könnunin er unnin í samræmi við lög 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sjá nánar hér.