Byggingarlóðir án gatnagerðagjalda

Hreppsnefnd Höfðahrepps hefur ákveðið að auglýsa sérstaklega byggingarlóðir við þegar tilbúnar götur þannig að veittur verði afsláttur allra gatnagerðagjalda vegna bygginga á lóðunum.

Hreppsnefnd samþykkir jafnframt að eftirfarandi ákvæði gildi um úthlutun allt að fjögurra íbúðarhúsalóða sem afslátturinn muni ná til:

·        Lóðirnar sem um ræðir verða skilgreindar á lista sem hreppsnefnd samþykkir.

·        Umsóknir um lóðirnar skulu berast eigi síðar en 31. desember 2006 en umsóknir sem berast á umsóknarfresti verða afgreiddar af skipulags- og byggingarnefnd eftir því sem efni standa til og gildir röð umsókna um nýtingu fyrrgreinds afsláttar.

·        Við úthlutun lóðanna skulu gilda ákvæði um að byggingarframkvæmdir skuli vera hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar skuli hafa hlotið fokheldisvottorð innan tveggja ára, að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðagjalda

 

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Höfðahrepps.

 

Skagaströnd, 2. nóvember 2006.

 

Sveitarstjóri