Draumaraddirnar leita að 12-16 ára stúlkum

Stúlknakór Norðurlands vestra er að taka til starfa aftur núna í janúar 2011.
Allar stúlkur sem tekið hafa þátt í verkefnum Draumaraddana eru velkomnar, einnig bjóðum við nýjar stúlkur 12-16 ára boðnar velkomnar.
 
Áhugasömum stúlkum er bent á að hafa samband við viðkomandi á sínu svæði:
  • Hvammstanga, uppl. og skráning hjá Elínborgu, sími 864-2137. Æfingar verða eftir skóla á þriðjudögum.
  • Blönduós og Skagaströnd, uppl. og skráning hjá Skarphéðni/Kristínu, sími 452-4180. Æfingaplan kemur síðar.
  • Sauðárkróki, uppl. og skráning hjá Alexöndru, sími 894-5254. Æfingar á fimmtudögum kl. 16:00.
Stúlkur sem hafa verið í kórnum þurfa að staðfesta þátttöku.
 
Fyrirhugað er að setja upp óperuna og söngleikinn “Phantom of the opera / Óperudraugurinn” og koma Draumaraddirnar til með að taka þátt í því verkefni. Frumsýning verður 1. maí.

Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna á www.dreamvoices.is og hjá Alexöndru í síma 894-5254.