Drekktu betur í kvöld í Kántrýbæ ...!

Þær Ósk Richter og Sigríður Sveinsdóttir verða hæstráðendur til sjós og lands í spurningaleiknum Drekktu betur sem verður í kvöld í Kántrýbæ kl. 21:30.

Þegar kátar konur fá að stjórna er pottþétt að allir munu skemmta sér af hjartans lyst.

Þær ætla að spyrja um samfélagið, eitthvað héðan af Skagströnd, um hitt og þetta sem allir eiga að vita.