Elín Ósk sigraði Stærðfræðikeppnina 2015

 
Elín Ósk Björnsdóttir  hreppti fyrsta sætið í Stærðfræðikeppninnar 2015. Úlfar Hörður Sveinsson var í 2. sæti. Þriðja sætinu deildu þau Ágústa Eyjólfsdóttir og Aron Ingi Ingþórsson.  Ljósm./mtr.is

Elín Ósk Björnsdóttir hreppti fyrsta sætið í Stærðfræðikeppninnar 2015. Úlfar Hörður Sveinsson var í 2. sæti. Þriðja sætinu deildu þau Ágústa Eyjólfsdóttir og Aron Ingi Ingþórsson. Ljósm./mtr.is

Elín Ósk Björnsdóttir,  í Höfðaskóla á Skagaströnd, varð í fyrsta sæti í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga fyrir 9. bekki grunnskóla á Norðurlandi vestra, í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð.

Í öðru sæti var Úlfar Hörður Sveinsson í Ársskóla á Sauðárkróki og þriðja sætinu deildu þau Ágústa Eyjólfsdóttir, Ársskóla og Aron Ingi Ingþórsson, Húnavallaskóla.

Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga. Undankeppnin fór fram  í mars sl. og tóku nemendur í 9. bekk af Norðurlandi vestra,  úr Fjallabyggð og Dalvíkurskóla þátt í henni. Að þessu sinni komust 15 nemendur í úrslit.

„Það var glæsilegur hópur sem mætt einbeittur til leiks í morgun. Keppendur stóðu sig allir með afbrigðum vel og voru snöggir að svara prófinu,“ segir í frétt á vef MTR.

Frétt af vef Feykis