Elínborgardagurinn

 
menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg
miðvikudaginn 9. nóvember 2016 kl. 18:00


Skv. hefð er Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Í Höfðaskóla er dagurinn einnig helgaður minningu Elínborgar Jónsdóttur fyrrverandi kennara við skólann.

Af þessu tilefni mun Höfðaskóli standa fyrir menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg miðvikudaginn 9. nóvember n.k.


Eins og undanfarin ár mun nemendafélagið Rán, með dyggri aðstoð foreldra, bjóða upp á kökuhlaðborð að lokinni dagskrá.


Frítt er á dagskrána en aðgangur að kökuhlaðborði er:
 1000 kr. fyrir eldri en grunnskólanemendur
 500 kr. fyrir grunnskólanemendur
 frítt fyrir þriðja barn frá heimili
 frítt fyrir leikskólanemendur


Vonumst til að sjá sem flesta í hátíðarskapi.
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla.