Endurvinnslutunnum dreift í hús

Tímamót eru nú á Skagaströnd. Verið er að dreifa í hús nýjum ruslatunnum og verða framvegis tvær tunnur á íbúð, önnur er fyrir óflokkaðan úrgang og hin fyrir það sem á að fara til endurvinnslu. 

Sú breyting verður á sorphirðun að tunnan með græna lokinu verður losuð mánaðarlega en hin, sú með svarta lokinu, verður losuð á tveggja vikna fresti.

Mikilvægt er að setja allan pappír og pappa  beint í endurvinnslutunnuna. Málmar fernur og plast skal þó setja í glæra poka svo auðveldara verði að flokka þessa hluti.

Gömlu tunnurnar eru eign húseigenda.

Að öðru leyti er vísað í bækling um endurvinnslu sem dreift var í öll hús á Skagaströnd um síðustu mánaðarmót. 

Á myndinni eru Hörður Aðils Vilhelmsson og Guðni Már Lýðsson með fangið fullt af tunnum.