Heimsóknarreglur rýmkaðar

Heimsóknareglur á Sæborgar verða rýmkaðar frá og með deginum í dag 16. sept. Er þessi ákvörðun tekin út frá nýjum leiðbeiningum frá Almannavörnum, Embætti landlæknis og samráðsnefnd hjúkrunarheimila.

Vinsamlegast kynnið ykkur vel eftirfarandi heimsóknarreglur:

  1. Takmarkanir á heimsóknum til íbúa miðast við að hámarki 2 gestir komi í hverri heimsókn. Ekki er gerð krafa um að það séu alltaf sömu aðilar. Biðjum við heimsóknargesti um að sýna ýtrustu varkárni í sóttvörnum.
  2. Aðstandendur verða að spritta hendur við komu og skrá komu sína á sérstakt blað sem staðsett er inn á herbergi íbúa (er þetta gert til að auðvelda rakningu ef upp kemur smit) og þarf að virða 1 meters regluna.
  3. Miðað er við að ekki sé gengið um aðaldyr stofnunarinnar og ekki sé komið inn í önnu rými en einkarými íbúans. Aðstandendur eru því beðnir um að ganga beint inn í einkarými íbúans, sömu leið til baka og ekki vera í samneyti við aðra íbúa.

Óheimilt að koma í heimsókn ef:

  1. Ef þú hefur verið í útlöndum og ekki er komin niðurstaða úr sýnatöku á landamærum.
  2. Þú ert í sóttkví
  3. Þú ert í einangrun eða bíða eftir niðurstöðum úr sýnatöku
  4. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
  5. Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinberki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.)
  6. Aðstandendur sem hafa umgengist einstakling með COVID-19 er að öllu óheimilt koma í heimsókn

Áfram er mælst til þess að aðstandendur hafi smitrakningarapp Embættis landlæknis í símum sínum.

Íbúum er heimilt að fara í bíltúr eða göngutúr með aðstandenda. Íbúum er heimilt að fara í heimsóknir/matarboð í heimahús ef sóttvarna er gætt og 1 meters reglan er virt.

Munum að við erum almannavarnir og handþvottur og spritt er öflug vörn gegn sýkingum.

Athugið: ef smit vegna COVID-19 aukast aftur, eða smit vegna annarrra smitsjúkdóma, munu tilslakanir á heimsóknarbanni ganga til baka og reglur verða hertar á ný