Sumarstörf fyrir framhaldsskólanema

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir sumarstörf við ýmis útiverkefni í sumar fyrir framhaldsskólanema 17 ára og eldri.

Vinnan er unnin samhliða vinnuskólanum og felst aðallega í því að vinna með sláttuvélar og vélarorf á opnum svæðum og stofnanalóðum sveitarfélagsins. Þá er einnig unnið við almenn garðyrkjustörf og önnur umhverfistengd verkefni.

Vinnutímabil: Frá þriðjudeginum 1. júní til og með 30. júlí. Mæting er stundvíslega niðrí áhaldahús kl 9. þriðjudaginn 1. júní. 

 

Júní

Daglegur vinnutími frá 09-12 og 13-16 mánudaga til miðvikudaga. Ekki verður unnið á fimmtudögum og föstudögum í júní.

Júlí

Daglegur vinnutími er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga en á föstudögum til 12:00.

Laun
Laun eru greidd út mánaðarlega

 
Krafist er stundvísi, ástundunar, reglusemi og kurteisi.
 
 
Upplýsingar veitir Árni Geir verkstjóri:

Áhaldahús: 4522607 Árni Geir: 8614267

Frekari upplýsingar er þá hægt að nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins, í síma 455-2700 og netfanginu: sveitarstjori@skagastrond.is

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí og umsóknareyðublað má finna hér.