Ert þú næsti verkefnastjóri hjá SSNV? - við leitum að liðsauka!

SSNV, samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa laust til umsóknar starf verkefnastjóra. Leitað er að drífandi, framsýnum og sjálfstæðum verkefnastjóra sem býr yfir einstökum hæfileikum í mannlegum samskiptum.

Við óskum eftir samstarfsfélaga sem hefur ástríðu fyrir uppbyggingu samfélagsins sem við búum í og vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem heyra undir málaflokka landshlutasamtakanna. Við lofum góðu starfsumhverfi og metnaðarfullum verkefnum.

SSNV eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hjá SSNV starfar metnaðarfullt teymi sem vinnur af ástríðu fyrir samfélagið, fyrirtæki og fólk á svæðinu. Starfsstöðvar SSNV eru á Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd og Sauðárkróki. Við leitum að einstakling sem vinnur með okkur að eflingu svæðisins og viðkomandi stéttarfélags.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
SSNV leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið. Starfshlutfall er 100%.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn verkefnastjórnun og umsýsla verkefna.
  • Umsjón með málaflokkum sem eru í áherslu hverju sinni.
  • Samskipti við styrkþega, upplýsingamiðlun og önnur umsýsla.
  • Almenn atvinnuráðgjöf og samskipti við hagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
  • Haldbær þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga.
  • Góð samskiptafærni og tölvukunnátta.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæðni.
  • Framsýni og metnaður.
  • Góð rit- og talfærni á íslensku og hæfni í framsetningu upplýsinga á aðgengilegan hátt.

Umsóknarfrestur er til 26. mars 2024
ssnv@ssnv.is