FÉLAGSVIST

Kvenfélagið Eining mun standa fyrir þriggjakvölda félagsvist á næstunni. Spilað verður í félagsheimilinu Fellsborg.

Spilað verður mánudaginn 27. febrúar, mánudaginn 5. mars og
mánudaginn 12. mars

Húsið opnar kl. 20:00. Byrjað verður að spila kl.20:30.

Miðaverð er 1000 kr. fyrir kvöldið. 1800 kr ef greitt er fyrir 2 kvöld, og 2400 kr ef greitt er fyrir 3 kvöld.

Vinningar eru í boði fyrir hvert kvöld fyrir sig, hæsti karl og hæsta kona og svo skammarverðlaunin að sjálfsögðu. Svo er tekin heildarsumma allra kvölda og sá stigahæsti fær veglegan vinning síðasta kvöldið.

Kaffiveitingar í hléi eru innifaldar í miðaverði.

Kvenfélagið Eining.