Fellsborg og skólamáltíðir

Sveitarstjórn Skagastrandar ákvað á fundi sínum þann 21. maí sl. að auglýsa Fellsborg til leigu ásamt því að auglýsa eftir aðilium til þess að sjá um skólamötuneyti Höfðaskóla.

Óskað er eftir rekstraraðilum fyrir Fellsborg og skólamáltíðirnar saman þar sem skólamötuneytið er staðsett í Fellsborg. 

Félagsheimilið Fellsborg var byggt árið 1965. Í húsinu eru 2 misstórir salir, sem nýttir hafa verið til skemmtanahalds, leiksýninga, ættarmóta, fatamarkaða og fl. Bókasafn Sveitarfélagsins er á neðri hæð sem og félagsstarf eldri borgara. Kvenfélagið Eining og UMF Fram hafa þar einnig aðstöðu. Við húsið er íþróttavöllur staðarins og einnig ágæt aðstaða fyrir tjöld og tjaldvagna sem hefur einkum verið nýtt í tengslum við ættarmót sem haldin eru í húsinu. Eldhús Fellsborgar var nýlega gert upp á glæsilegan máta. Framkvæmdir utandyra hófust á húsinu sl. sumar og munu þær klárast fyrir haustið.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 15. júní 2021 þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um rekstur.

Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is. Öllum umsóknum verður svarað.

Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 455-2700 eða á netfanginu sveitarstjori@skagastrond.is