Ferðavagnageymslan 2021-2022 í rækjuvinnslu

Sveitarfélagið mun í vetur bjóða upp á frostfría ferðavagnageymslu fyrir hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, traktora og bíla yfir haust- og vetrarmánuðina í gömlu rækjuvinnslunni að Oddagötu 12.


Tekið verður á móti faratækjum og vögnum frá 1. september nk. Afhending eftir veturinn fer fram þann 15. maí 2022.

Verð: 12.000 kr./lengdarmetri með beisli.

 

Beiðni um geymslupláss skal senda á sveitarstjori@skagastrond.is eða hafa samband við skrifstofu í síma 455-2700.

Röð umsókna ræður.

Öllum fyrirspurnum verður svarað.

Tryggingar á eigum leigutaka.
Leigutaki ber einn ábyrgð á eigum sínum í hinu leigða húsnæði og skal sjá um að tryggja eigur sínar sjái hann ástæðu til. Leigusali mælist til þess að leigutaki láti tryggingarfélag sitt vita að ferðavagn eða aðrar eigur hans séu í geymdar í geymslunni.