Fiskibollur...Fiskibollur í dag

 


Foreldrar 9. bekkinga í Höfðaskóla munu steikja fiskibollur í Vörusmiðju BioPol ehf í dag. Bjóðum ykkur að koma þangað og versla heitar fiskibollur milli kl. 18:30 og 19:00. Gengið inn að ofan (um iðnaðarhurð). Fólk er hvatt til að koma með ílát að heiman til að setja fiskibollurnar í.

Verð: 500 gr: 1,500, 1 Kg: 2,500, 1,5 kg: 4,000, 2 kg: 5,000.

Krakkarnir munu svo ganga í hús á næstunni og selja frosnar vakumpakkaðar bollur, en það verður nánar auglýst síðar. Endilega látið orðið berast https://static.xx.fbcdn.net/images/emoji.php/v9/fd8/1.5/16/1f60a.png😊 Ath. Erum ekki með posa.


9. bekkur Höfðaskóla