Fjárhagsáætlun Skagastrandar samþykkt samhljóða

Reiknað er með að rekstrarafkoma aðalsjóðs Skagastrandar skili um 31,6 milljóna króna afgangi samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2010 sem var samþykkt samhljóða á fundi sveitarstjórnar miðvikudaginn 13. janúar sl.

Gert er ráð fyrir að fjárfestingar á sveitarfélagsins verða á árinu tæplega 135 milljónir króna. áætlað er að handbært fé verði um 706 milljónir í árslok.

Álagningareglur fyrir árið 2010 verða sem hér segir:

Fasteignaskattur:

  • Álagning á íbúðarhúsnæði (A-flokkur) verði 0,43% af álagningarstofni. 
  • Álagning á opinberar stofnanir (B-flokkur) verði 1,32% af álagningastofni.
  • Álagning á verslunar- og iðnaðarhúsnæði verði (C-flokkur) 1,58% (1,32% + 25%) af álagningarstofni. 

Lóðarleiga:

  • Lóðarleiga verði 1,5% af fasteignamatsverði lóða.

Vatnsskattur:

  • Vatnsskattur verði 0,3% af fasteignamati, lágmark 7.000  kr. og hámark  21.000 kr. 

Holræsagjald:

  • Holræsagjald verði 0,2% af fasteignamati lóða og mannvirkja

Sorphirðugjald /sorpeyðingargjald:

  • Sorphirðugjald verði  15.500 kr./íbúð.
  • Sorpeyðingargjald verði  7.500 kr./íbúð. 
  • Sorpeyðingargjald á hesthús og fjárhús verði 2.500 kr./hús í notkun. 
  • Sorpeyðingargjöld verði 10.000 –  200.000 eftir áætluðu magni sorps frá fyrirtækjum og stofnunum.

Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Skagastrandar er að finna í fundargerð sveitarstjórnar sem birt er hér.