Fjöruhreinsunarátak Höfðaskóla

 


 

Nemendur fimm elstu bekkja Höfðaskóla fóru út úr skólanum þriðjudaginn 29. maí og eyddu skóladeginum í að tína rusl í fjörunum í nágrenni Skagastrandar, með kennurum og starfsfólki frá BioPol. Tíundu bekkingar fóru þó lengra því þeir hreinsuðu rusl í Kálfhamarsvík og víkinni norðan við hana. Sjötti og sjöundi bekkur byrjuðu sinn leiðangur í Bæjarvíkinni á Finnstaðanesinu og gengu svo alla leið heim að Salthúsinu með pokana sína. Krakkarnir í áttund og níunda bekk gengu síðan leiðina frá Vinhælisstapanum og heim að Bjarmnesi.

Á svæðinu við Kálshamarsvík safnaðist um 150 kg af rusli en ca 95% af því var alls konar plastefni. Þar voru áberandi stuttir grænir nælonspottar eins og eru  í trollum togara og snurvoðarbáta. Greinilega var um að ræða afskurð sem til fellur þegar verið er að gera við trollið og er hér með farið fram á það við sjómenn að þeir passi betur upp á þessa litlu spotta þannig að þeir fari ekki í sjóinn.

Á leiðinni frá Finnstöðum og heim tíndust upp 220 kg af alls kyns rusli meðal annars nokkur gömul dekk og netadræsur auk alls plast- og járnaruslsins. Frá Vinhælisstapanum og heim voru dekk mest áberandi. Krakkarnir tíndu þau saman í stóran haug en síðan voru þau sótt á kerru og með dráttarvél. Giska má á að hér hafi verið um 60 – 70 dekk og dekkjarifrildi. Auk þess var tínt mikið af plasti eins og á hinum stöðunum.

Í þessu hreinsunarátaki, sem er hluti af umhverfismennt skólans,  var nemendunum uppálagt að skipta sér ekki af spýtum né fuglshræum sem telja má að séu “eðlilegir‘‘ hlutir í fjörum landsins enda eyðast þeir með tímanum öfugt við plastið sem sagt er að endist a.m.k 500 ár í náttúrunni. Nemendur voru sammála um að það kom þeim á óvart hve mikið af plastrusli þau fundu og áttu erfitt með að ímynda sér hve mikið af því væri þá í hafinu við strendur landsins fyrst svo mikið rekur í fjörurnar.

Myndirnar tók James Kennedy