Frá Spákonuhofinu



Spákonuhofið á Skagaströnd er opið á miðvikudagskvöldum til jóla frá klukkan 20:00- 22:00.   Ýmislegt skemmtilegt til jólagjafa í litlu sölubúðinni t.d. úrval af prjónavörum, margskonar armbömd, hálsfestar, myndakerti og margt margt  fleira, handverk úr heimabyggð,  kaffi og kökur í boði.
Gjafabréf í Spákonuhofið er skemmtileg og spennandi gjöf , upphæð að eigin vali.
Undanfarnar vikur hefur verið mikið um draugagang í Spákonuhofinu, eða réttara sagt þar hafa verið haldin tvö draugasögukvöld, annað fyrir fullorna og hitt fyrir yngri kynslóðina. Var mæting alveg feyki góð og mættu rúmlega 60 manns á þessa viðburði sem þóttu nokkuð skelfilegir en umfram allt skemmtilegir.

Verið velkomin,

Dagný og Sigrún


>