Frábær skemmtun á 25 ára afmæli Golfklúbbsins

Golfklúbbur Skagastrandar er 25 ára í nóvember og í tilefni þess var haldið afmælishóf í Kántrýbæ síðasta laugardagskvöld. Klúbburinn var stofnaður þann 27. nóvember 1985 og nefndist í upphafi Golfklúbbur  Vindhælishrepps hins forna.

Tveir heiðursfélagar  voru útnefndir, Jón Ólafur Ívarsson og Hjördís Sigurðardóttir en bæði hafa verið óþreytandi í golfiðkun sinni  og lagt sitt  af mörkum  fyrir klúbbinn.

Haukur Örn Birgisson, varaforseti Golfsambands Íslands,  sæmdi þrjá félagsmenn gullmerki sambandsins  fyrir vel unnin störf í þágu golfklúbbsins um árabil. Þau voru Adolf H. Berndsen, Dagný M. Sigmarsdóttir og Ingibergur Guðmundsson en öll hafa þau m.a. verið formenn klúbbsins. Auk þeirra hafa Bjarnhildur Sigurðardóttir og Fríða Hafsteinsdóttir gegnt formannsstöðunni. Einnig afhenti Haukur golfklúbbnum fallegan bikar í tilefni afmælisins.

Afmælishátíðin þótti takast afar vel og þrátt fyrir að veður hafi verið slæmt fyrr um daginn mættu fjölmargir golfarar. Meðal skemmtiatriða var slagverksspil tveggja ungra stúlkna, Sigurbjargar Birtu Berndsen og Guðrúnar Önnu Halldórsdóttur  sem léku eins og englar. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Sigríður  Stefánsdóttir sungu tvö lög og Adolf J. Berndsen lék á harmónikku.

Ingibergur Guðmundsson fór yfir sögu klúbbsins  og sýndi myndir  og sást þá glögglega að  miklar breytingar hafa orðið á golfvellinum á þessum aldarfjórðungi. Ekki er heldur laust við að útlit einstakra golfara hafi breyst nokkuð en á móti kemur að tækni flestra þeirra hefur frekar lagast í gegnum árin.

Golfekkillinn, Ólafur Bernódusson, rakti raunasögu sína en fyrir 25 árum hóf kona hans að leika golf í stað þess að standa fyrir framan eldavélina og sinna matargerð, hafa til inniskóna og sinna barnauppeldi. Smám saman hefur hann þó sætt sig við hlutskipti sitt og jafnvel hefur örlað á gleði er konan kemur heim með verðlaunagripi. 
Veislustjórar voru Lárus Ægir Guðmundsson og Dagný M. Sigmarsdóttir.

Ástæða er að geta þess að þrírétta matseðillinn í Kántrýbæ var ákaflega góður og ber að þakka fyrir hann sem og góða þjónustu. Ljóst er að veitingastaðurinn er með þeim bestu og fáir taka honum fram við matargerð.