Fréttaskot frá Skagaströnd

Það er sannarlega nóg um að vera hjá sveitarfélaginu þessa dagana og vorið komið af fullum krafti á Skagaströnd. Hér kemur smá fréttaskot um það helsta sem hefur verið í gangi – og það sem er framundan:

Framkvæmdir

Það eru góðar fréttir af framkvæmdum. Vegna hagstæðrar veðurspár hefur malbikunarframkvæmdum verið flýtt og stefnt er að því að hefja vinnu strax mánudaginn 11. maí í stað 18. maí eins og áður var áætlað. Nánari upplýsingar um röð gatna og fyrirkomulag verða birtar um helgina og biðjum við um gott samstarf við íbúa svo að framkvæmdir geti gengið hratt og örugglega. 

Sveitarstjórn tók ákvörðun um að malbika fyrir pickleball-velli til hliðar við körfuboltavöllinn við skólalóðina í þeim malbikunarframkvæmdum sem framundan eru. Þar með eignast Skagaströnd fyrsta úti-pickleballvöll landsins! Það verður gaman að sjá hvernig sá vettvangur mun nýtast í sumar.

Framkvæmdir við Spákonufellshöfða eru einnig að komast á lokametrana. Stígurinn sjálfur er kominn upp ásamt bekkjum og svæðið allt farið að taka á sig virkilega glæsilega mynd. Eftir er að ganga frá hellulögn við upphaf stígsins og klára pallinn við enda hans.
Næsta verkefni verður svo auðvitað að finna nafn á herlegheitin — og við treystum því að íbúar og aðrir áhugasamir komi með aðeins frumlegri tillögur en „Stígurinn“.

Tónlistarskólinn

Búið er að opna fyrir innritun í Tónlistarskóla A-Húnvetninga fyrir skólaárið 2026–2027 og hvetjum við áhugasama til að kynna sér málið nánar á
heimasíðu tónlistarskólans

Við viljum líka hvetja sem flesta til að mæta á vortónleika og skólaslit þessa flotta hóps.
Upplýsingar um staðsetningar og tímasetningar má finna hér:
Vortónleikar og skólaslit

Vinnuskólinn 

Því miður hefur enn ekki tekist að manna stöður flokkstjóra í Vinnuskólanum þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar. Við höldum áfram leitinni næstu daga og tökum glöð á móti öllum ábendingum um fólk sem gæti haft áhuga á þessu mikilvæga og skemmtilega starfi.

Störf í Húnabyggð

Nágrannar okkar í Húnabyggð leita nú að starfsfólki en alls eru 11 störf auglýst hjá gagnaverinu í sumar. Við hvetjum áhugasama til að skoða auglýsinguna hér:
Störf hjá gagnaverinu í Húnabyggð

Íþróttahúsið - ómönnuð opnun í ræktinni

Sveitarfélagið fékk nýlega samþykkta breytingu á starfsleyfi sem gerir kleift að bjóða upp á ómannaða opnun í ræktinni utan hefðbundins opnunartíma. Unnið er að nauðsynlegum breytingum og vonumst við til að geta tekið nýtt fyrirkomulag í notkun innan skamms. Þetta verður kærkomin viðbót fyrir marga sem vilja meiri sveigjanleika í hreyfingu og heilsurækt.

Leikskólinn

Við minnum foreldra og forráðamenn á að leikskólinn verður lokaður fimmtudaginn 14. maí og föstudaginn 15. maí vegna uppstigningardags og starfsdags starfsfólks leikskólans.

Kosningar

Það styttist í kjördag sem fer fram 16. maí næstkomandi og viljum við hvetja alla til að nýta kosningarétt sinn. Upplýsingar um kjördag og utankjörfundarkosningu má nálgast hér:
Upplýsingar um kosningar

Upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Vert er að minna á að nýkjörin sveitarstjórn tekur formlega við störfum 15 dögum eftir kjördag. Þar til þá heldur sitjandi sveitarstjórn umboði sínu og sinnir áfram daglegum verkefnum sveitarfélagsins fram til 31. maí. Ráðning sveitarstjóra miðast við sama tímabil.

Að lokum

Minnum við á hið vinsæla krílasport í íþróttahúsinu á laugardögum milli kl. 10–11 — frábær stund fyrir yngstu iðkendurna og fjölskyldurnar þeirra.

Eigið góða helgi og njótið malbikunarvorsins á Skagaströnd

Sveitarstjóri