Fréttaskot frá Skagaströnd
Ýmislegt hefur verið á döfinni á Skagaströnd undanfarið!
Nýverið var framkvæmd foreldrakönnun á leikskólanum Barnabóli. Svarhlutfall var 100% og erum við foreldrum afar þakklát fyrir þá góðu og mikilvægu þátttöku.
Skólapúlsinn sá um framkvæmd könnunarinnar, úrvinnslu og skýrslugerð, en hún var lögð fyrir á landsvísu í þeim leikskólum sem taka þátt.
Niðurstöðurnar eru einstaklega ánægjulegar. Heildaránægja með leikskólann mælist 100%, líkt og í könnunum árin 2022 og 2024. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu stöðugur og traustur þessi árangur er yfir tíma.
Í lykilþáttum könnunarinnar mælist jafnframt 100% ánægja, meðal annars með líðan barna, stjórnun, mataræði og húsnæði. Þá mælist einnig 100% ánægja í fjölmörgum öðrum matsþáttum.
Innilega til hamingju, kæra starfsfólk Barnabóls – og til hamingju Skagaströnd með þennan framúrskarandi leikskóla.



Framkvæmdir við Höfðaskóla hafa gengið vonum framar. Búið er að bæta bæði hljóðvist og lýsingu í nánast öllum skólanum á báðum hæðum hans.
Áhrifin hafa þegar skilað sér og er munurinn greinilegur fyrir bæði starfsfólk og nemendur. Það er sérstaklega ánægjulegt þegar framkvæmdir sem þessar ganga vel, jafnvel þótt unnið sé á skólatíma, og skila strax tilætluðum árangri.
Heimamenn í Verklausn eiga hrós skilið fyrir faglega og vel unna framkvæmd.
Í vikunni undirritaði sveitarstjóri kaupsamning vegna sölu á húsnæði Sæborgar á Skagaströnd fyrir hönd skiptastjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún.
Ríkið tók yfir rekstur hjúkrunarheimilisins í maí 2025 og markar salan því lokaskrefið í yfirfærslu starfseminnar til ríkisins. Það er mikilvægt að rekstur og húsnæði séu á sömu hendi, þar sem það einfaldar ábyrgðarskiptingu, styður við skilvirkari ákvarðanatöku og tryggir betur heildstæða uppbyggingu og viðhald til framtíðar.
Niðurstöður útboðs vegna Miðgarðs, endurbyggingar milli Ásgarðs, liggja nú fyrir. Útboðsfrestur rann út 3. mars sl. kl. 14:00 og bárust tvö tilboð:
Úlfsstaðir ehf., Reykjavík: 83.845.898 kr. (103,4%)
Árni Helgason ehf., Ólafsfirði: 64.064.448 kr. (79%)
Tilboðin hafa verið yfirfarin og leiðrétt eftir því sem við á. Vegagerðin hefur lagt til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Árna Helgason ehf., og hefur bjóðandi verið metinn samningshæfur.
Gert er ráð fyrir að gengið verði frá samningi í næstu viku á grundvelli samþykktar sveitarstjórnar. Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu hafnarinnar og þeim jákvæðu áhrifum sem framkvæmdin mun hafa.
Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á 4 íbúðum að Ránarbraut 2, Skagaströnd. Um er að ræða tvær 3ja herbergja íbúðir, um 83 m² að stærð, og tvær 4ra herbergja íbúðir, um 95 m² að stærð.
Brák íbúðafélag er rekið án hagnaðarmarkmiða og er markmið félagsins að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.
Um útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Í lögunum og reglugerðum eru tilgreind tekju- og eignamörk, ásamt viðmiðum um greiðslubyrði leigu.
Uppbygging þessara íbúða er í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins og er gott dæmi um samstarfsverkefni þar sem húsnæðisstuðningur sveitarfélags og ríkis er nýttur til uppbyggingar íbúða utan höfuðborgarsvæðisins.
Umsókn um leigu:
Senda skal umsókn á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is. Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda, ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026.
Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðum þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.
Við minnum á Krílasport í íþróttahúsinu á laugardögum á milli 10-11 og hvetjum alla til að kynna sér þá góðu aðstöðu sem er í íþróttahúsinu okkar til að efla heilsu og vellíðan. Starfsemina má kynna sér hér.
Eigið góða helgi!