Fréttatilkynning

Fyrirlestur um Guðmund Björnsson landlækni (1906 -1931) og umbætur í geðheilbrigðismálum  á fyrstu árum 20. aldar verður haldinn á vegum Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Skagaströnd og Þekkingarsetursins á Blönduósi, laugardaginn 11. maí klukkan 14:00 í Kvennaskólanum á Blönduósi.

Fyrirlesturinn er ókeypis og öllum opinn.                                                                                                      

Það er Sigurgeir Guðjónsson, doktorsnemi við Háskóla Íslands, sem flytur fyrirlesturinn. Sigurgeir var alinn upp á Akureyri, útskrifaðist af málabraut MA 1985, lauk mastersgráðu í sagnfræði 1996 og kennslufræði frá HA 1999.

Hann vinnur nú að doktorsritgerð sinni sem mun fjalla um sögu geðsjúkra á Íslandi með áherslu á tímablið 1834 til 1910.  Sigurgeir hefur víða haldið fyrirlestra um efni sem tengjast rannsóknum hans og nú loksins geta

Rannsóknasetrið og Þekkingarsetrið  boðið upp á spennandi fyrirlestur Sigurgeirs  um þetta áhugaverða efni.                                                                              

Guðmundur Björnsson landlæknir var Húnvetningur, fæddur í Gröf í Víðidal 1864. Hann var alþingismaður, landlæknir, héraðslæknir í Reykjavík, kennari við læknaskólann og seinna prófessor í læknisfræði. Hann hafði því mikil og margvísleg áhrif á uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar á landinu á fyrstu áratugum 20. aldar m.a. í geðheilbrigðismálum.                                              

Fyrirlesturinn um þennan mæta Húnvetning er samstarfsverkefni Rannsóknasetursins og Þekkingarsetursins og er vonast til að sem flestir taki frá tíma laugardaginn 11. maí  til að koma í Kvennaskólann, fá sér kaffibolla og fræðast örlítið um fortíðina.