Fréttir frá Leikskólanum Barnaból

Aðventan er skemmtilegur tími á leikskólanum Barnabóli, mikið að gerast og hver viðburðurinn rekur annan. Í áranna rás hafa skapast margar hefðir sem okkur finnst ómissandi að viðhalda á þessum árstíma.

Fyrir dag íslenskrar tungu 16. nóvember æfðu börnin á eldri deildinni smá dagskrá sem þau buðu yngri börnunum að koma og hlýða á og syngja með.

Laugardaginn 2. desember komu leikskólabörn, foreldrar og starfsmenn saman og bökuðu piparkökur og skreyttu. Börnunum er skipt niður í 6-7 barna hópa sem koma með um hálftíma millibili á leikskólann og hefur þetta skipulag gengið vel í gegnum árin en stundum orðið bið eftir ofninum. Mikill munur er á aðstöðunni í nýja eldhúinu t.d. að þar eru nú tveir ofnar og baksturinn gekk mjög vel. Margir fara síðan með systkinum sínum í Höfðaskóla og taka þátt í föndurdegi þar. Komin er hefð fyrir að  þessi laugardagur er fjölskyldudagur hjá skólunum á Skagaströnd og finnst mörgum þetta ómissandi þáttur í byrjun aðventu.

 

Börnin buðu foreldrum sínum, ömmum og öfum í aðventukaffi  7. desember og höfðu sjálf bakað piparkökur sem runnu ljúflega niður ásamt bananabrauðinu hennar Ásthildar.  

Einn daginn birtust þrír, íturvaxnir jólasveinar á glugganum á Lundi einmitt þegar við vorum nýbyrjuð á jólaballinu! Það varð uppi fótur og fit og börnin vildu ólm bjóða þeim  í bæinn og þeir komu og dönsuðu með okkur kringum jólatréð. Þetta voru sko fínir sveinkar sem kunnu öll jólalögin okkar og fannst auðséð gaman að dansa þó þeir væru nokkuð stórstígir. Börnin voru mjög hrifin af þeim og enginn var hræddur eða fór að gráta. Jólasveinarnir voru að vonum þreyttir eftir ferðina ofan úr fjöllum og fegnir að fá að hvíla sig hjá okkur smá stund og þá kom í ljós að þeir voru með poka fullan af gjöfum, ein fyrir hvert barn. Í pakkanum var bók, popp, svali og mandarína sem börnin þökkuðu jólasveinunum kurteislega fyrir. Þegar síðast sást til sveinkanna voru þeir að kafa í skafli sunnan við leikskólann, detta hver um annan þveran og smávegis að fljúgast á, já, smá jólasveinatusk í góðu.  

Við fórum í heimsókn í Hólansekirkju og áttum góða stund með Sr. Fjölni og föstudaginn 15. desember fórum við í jólatrésferð á Hnappastaðatúnið, torgið okkar, og dönsuðum í kringum bæjarjólatréð. Börnin fundu nokkra poka með piparkökum festa í tréð og voru þær etnar upp til agna á staðnum, ótrúlegir þessir jólasveinar hvað þeir eru góðir við börn!

Smávegis snjór er á leikskólalóðinni og eins og vant er hann uppspretta ævintýra og gleði hjá börnunum, margar smá holur komnar í skaflinn við austurgirðinguna eina og litlar kanínur hafi verði þar á ferð.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og

farsældar á nýja árinu.

Með kveðju frá Barnabóli

Þórunn Bernódusdóttir

leikskólastjóri og starfsfólk leikskólans