Frístundakort – umsóknarfrestur til 28. febrúar

Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 15 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður.

Þar sem útgáfa reikninga vegna íþróttastarfs á vegum Umf Fram á haustönn 2017 barst nokkuð seinna en venjulega er veittur frestur til 28. febrúar til að leggja fram umsókn og gögn vegna frístundastarfsins.

Reglur um frístundakort

Sveitarstjóri