Fundarboð sveitarstjórnar 11. nóvember 2026

Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar miðvikudaginn 11. nóvember 2026 kl. 16:30 á skrifstofu sveitarfélagsins að Túnbraut 1-3.

 

Dagskrá:

1. Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Fjárhagsáætlun lögð fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn og ákvörðun tekin um hundraðshluta útsvars í samræmi vði 1. mgr. 24. gr. Laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

2. Fjárhagsáætlun 2026, 9 mánaða uppgjör

Uppgjör vegna reksturs fyrstu 9 mánuða ársins lagt fram.

3. Fjárhagsáætlun 2026, viðaukar

Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 lagðir fram til afgreiðslu.

4. Heimasíða Sveitarfélagsins Skagastrandar

Verkefnislýsing og tilboð frá Stefnu vegna uppsetningar á nýjum vef fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd send 30.10.2026.

5. Samgöngu- og innviðanefnd Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Erindi frá framkvæmdastjóra SSNV dags. 15.10.2026 varðandi tilnefningu fulltrúa í samgöngu- og innviðanefnd SSNV.

6. Rekstur tjaldsvæðis

Erindi frá Landamerki ehf. dags. 23.10.2026 varðandi rekstur tjaldsvæðis á Skagaströnd.

7. Öldungaráð

Erindi frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi dags. 29.10.2026 þar sem greint er frá tilnefningu fulltrúa í öldungaráð.

8. Hafnarlóð 9

Viljayfirlýsing vegna uppbyggingar hótels og sundlaugar lögð fram.

9. Framkvæmdahópur farsældarráðs

Skipan fulltrúa Sveitarfélagsins Skagastrandar í framkvæmdahóp Farsældarráðs Norðurlands vestra.

10. Stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra

Erindi frá forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra dags. 19.10.2026 varðandi skipan fulltrúa Sveitarfélagsins Skagastrandar í stjórn NNv.

11. Almenningssamgöngur milli Skagastrandar og Sauðárkróks

Tillaga frá Vigdísi Elvu Þorgeirsdóttur, f.h. K-listans, varðandi eins árs tilraunaverkefni um almenningssamgöngur milli Skagastrandar og Sauðárkróks.

12. Upplýsingagjöf sveitarstjóra

13. Bréf og erindi

a) Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, dags. 02.11.2026

Varðar útgáfu bæklingsins Verum viðbúin.

b) Björgunarbátasjóður Húnaflóa, dags. 20.10.2026

Varðar fjárstuðning vegna kaupa á nýju björgunarskipi.

c) Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið, dags. 19.10.2026

Varðar könnun til sveitarfélaga um kolefnisstjórnunarverkefni.

d) Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, dags. 28.10.2026

Varðar ágóðahlutagreiðslu ársins 2026.

e) Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagstofnun, dags. 29.10.2026

Varðar endurskoðun húsnæðisáætlanna fyrir árið 2027.

f) Samband íslenskra sveitarfélaga, dags. 02.11.2026

Varðar frestun endurskoðunar virðismatsvegferðar kennara.

g) Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.10.2026

Varðar umsagnarbeiðni um 202. mál Loftlagslög.

h) Samband íslenskra sveitarfélaga, dags. 05.11.2026

Varðar rammasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og STEFs um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga.

i) Vegagerðin, móttekið 29.10.2026.

Varðar Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar sem fer fram í Reykjavík 06.11.2026.

j) Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 30.09.2026

Varðar boð um þátttöku í verkefni um miðlæga vöktun á aðgengi á vefjum.

14. Fundargerðir

a) Fundargerð atvinnu- og ferðamálanefndar Sveitarfélagsins Skagastrandar, sem fór fram 19.10.2026.

b) Fundargerð hafnar- og skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Skagastrandar, sem fór fram 20.10.2026.

d) Fundargerð 124. fundar stjórnar Norðurár bs., sem fór fram 26.10.2026.

e) Fundargerðir stjórnarfunda Samtaka sveitarfélaga á Norðulandi vestra, nr. 144 sem fór fram 22.09.2026, nr. 145 sem fór fram 06.10.2026 og nr. 146 sem fór fram 03.11.2026.

f) Fundargerðir Fagráðs - málefni fatlaðs fólks nr. 53 sem fór fram 27.10.2026 og nr. 54 sem fór fram 29.10.2026.

g) Fundargerð 70. fundar Fagráðs - barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands sem fór fram 05.10.2026.

h) Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 99 sem fór fram 24.08.2026 og nr. 100 sem fór fram 21.09.2026.

i) Fundargerðir funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 1004 sem fór fram 08.10.2026 og nr. 1005 sem fór fram 30.10.2026.

 

Skagaströnd, 9. nóvember 2026

Ólafur Þór Ólafsson

sveitarstjóri