Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar miðvikudaginn 14. september 2026 kl. 16:30 á skrifstofu sveitarfélgsins að Túnbraut 1-3.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Forsendur fjárhagsáætlunar 2027.
2. Fjárhagsáætlun 2026
Viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026 lagður fram til afgreiðslu.
3. Samningur um lán á starfsmanni
Samningur á milli KPMG og Sveitarfélagsins Skagastrandar um lán á starfsmanni lagður fram til staðfestingar.
4. Erindisbréf fræðslunefndar Sveitarfélagsins Skagastrandar
Erindisbréf fræðslunefndar Sveitarfélgsins Skagastrandar lagt fram til staðfestingar.
5. Bergið headspace, viðvera á Norðulandi vestra
Erindi frá verkefnastjóra farsældarráðs SSNV dags. 02.10.2026 þar sem óskað er eftir afstöðu til þátttöku í verkefni er varðar viðveru frá Berginu headspace á Norðulandi vestra.
6. Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026
Boð aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem fór fram 07.10.2026.
7. Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037
Erindi frá Skipulagsgátt dags. 10.09.2026 þar sem vakin er athygli á Húnabyggð hafi óskað eftir umsögn varðandi Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037, nr. 1293/2024 Auglýsing tillögu (nýtt aðalskipulag).
8. Höfðaskóli, starfandi skólastjóri
Staða starfandi skólastjóra Höfðaskóla.
9. Málefni slippsins á Skagaströnd
Umræður um málefni slippsins á Skagaströnd
10. Upplýsingagjöf sveitarstjóra
11. Bréf
a) Starfsgreinasamband Íslands, dags. 16.09.2026
Varðar þjóðarsátt um verðstöðuleika.
b) Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 24.09.2026
Varðar yfirferð á ársreikningi 2025.
c) Innviðaráðuneytið, dags. 06.10.2026
Varðar boð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2026.
d) Helena Mara Velemir ofl, dags. 16.09.2026
Varðar afnot af Fellsborg vegna jólamarkaðar í nóvember 2026.
e) Innviðaráðuneytið, dags. 15.09.2026
Varðar alþjóðlegan minningardag Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa sem verður haldinn sunnudaginn 15.11.2026.
f) Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dags. 11.09.2026
Varðar ósk um endurgjaldslaus afnot af húsnæði vegna viðburða á barnamenningarhátíðarinni Skúnaskralli.
g) Menningarfélagið Spákonuarfur, dags. 25.09.2026
Varðar rekstrarstyrk vegna reksturs Spákonuhofs á árinu 2027.
h) Hestamannafélagið Snarfari, dags. 28.09.2026
Varðar rekstrarstyrk vegna starfsemi félagsins á árinu 2027.
i) Unglingar í félagsmiðstöðinni á Skagaströnd, móttekið 06.10.2026.
Varðar breytingu á nafni félagsmiðstöðvarinnar Undirheima.
j) Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 24.09.2026
Varðar upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028-2033.
k) Ílóna Sif Ásgeirsdóttir, dags. 15.09.2026
Varðar samstarf við samtökin Villiketti vegna villikatta á Skagaströnd.
l) Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dags. 09.10.2026
Varðar fræðsluferð sveitarstjórnarfulltrúa og sveitarstjóra á Norðurlandi vestra til Noregs í ágúst 2027.
m) Hafnasamband Íslands, dags. 14.09.2026
Varðar boðun á Hafnasambandsþing sem fer fram í Reykjanesbæ 22.102026-23.10.2026.
n) Vinnueftirlitið, dags. 29.09.2026
Varðar ósk um gögn er varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað vegna starfsemi bókasafns í Fellsborg.
o) Samtök um kvennaathvarf, dags. 06.10.2026
Varðar starfsemi samtakanna.
p) Stígamót, dags. 07.10.2026
Varðar starfsemi samtakanna.
q) Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 08.10.2026
Varðar ósk um umsögn um 156. mál – frumvarp til laga umbreytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).
r) Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 17.09.2026
Varðar ósk um umsögn um frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 4. mál.
s) Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 17.09.2026
Varðar ósk um umsögn um 5. mál, Sveitarstjórnarlög.
t) Höfðasókn, dags. 05.10.2026
Varðar ósk um fjárframlag vegna ársins 2027.
u) Lárus Ægir Guðmundsson, dags. 09.09.2026
Varðar lúpínuvöxt á Höfðanum.
12. Fundargerðir
a) Fundargerð fræðslunefndar Sveitarfélagsins Skagastrandar, sem fór fram 07.10.2026.
b) Fundargerð 144. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi, sem fór fram 22.09.2026.
c) Fundargerð 123. fundar stjónar Norðurár b.s., sem fór fram 21.09.2026.
d) Fundargerð 143. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi, sem fór fram 31.08.2026.
e) Fundargerð stjórnarfundar Markaðsstofu Norðurlands, sem fór fram 28.08.2026.
f) Fundargerðir funda stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga: nr. 1002 sem fór fram 11.09.2026 og nr. 1003 sem fór fram 23.09.2026.
Skagaströnd, 12. október 2026,
Ólafur Þór Ólafsson
sveitarstjóri