Fyrirlestur um ferð Bandaríkjamanns í A-Hún 1873

Karl Aspelund flytur opinn fyrirlestur á vegum Fræðaseturs HÍ á Norðurlandi
vestra í Café Bjarmanesi sunnudaginn 13. júní kl. 14.

Þar les Karl úr nýfundinni ferðabók Bandaríkjamannsins S.S. Howland frá 1873
og sýnir myndir. Séstaklega verður greint frá kynnum Howlands af fólkinu á
Hnausum, Stóruborg og í Bólstaðarhlíð og gefin uppskrift af skyri sem hann
fékk í Víðidalstungu.

Karl mun sýna fjölmargar myndir, lesa upp úr ferðalýsingunum.

Karl er nemi til doktorsgráðu í mannfræði við Boston University í
Bandaríkjunum og hefur síðastliðin þrjú ár unnið að rannsókn um eðli og
stöðu þjóðlegs klæðnaðar íslenskra kvenna í dag. Hann hefur kennt fatahönnun
og skyldar greinar við University of Rhode Island síðan 1996 en tók nýlega
við fullri kennslustöðu í hönnun og búningasögu. 

Áður kenndi hann við Fataiðndeild Iðnskólans í Reykjavík og stjórnaði Iðnhönnunardeildinni þar jafnhliða því að hanna leikmyndir og búninga fyrir leikhús og kvikmyndir á Íslandi í rúman áratug. Karl er höfundur tveggja bóka: *The Design Process*, sem er notuð til kennslu í á fimmta tug háskóla í Bandaríkjunum og *Fashioning Society*, sögulegt yfirlit um stöðu hátískuhönnunar í nútímaþjóðfélagi vesturlanda. 
Karl dvelur um þessar mundir sem gestafræðimaður hjá Textílsetrinu á Blönduósi.