Sveitarfélagið hefur hafið vegferð sína í átt að því að verða Heilsueflandi samfélag. Sem eitt af fyrstu skrefunum í þeirri vinnu viljum við vekja athygli á landsátakinu Gulum september 2026, sem hefst í dag 1. september. Verkefnið hefur það að markmiði að efla geðrækt, auka þekkingu á sjálfsvígsforvörnum og hvetja okkur öll til að sýna hvert öðru umhyggju og vera til staðar.
Gulur september er samstarfsverkefni fjölmargra stofnana, félagasamtaka, sveitarfélaga og einstaklinga um allt land. Átakið minnir okkur á mikilvægi samkenndar og þess að hvert og eitt okkar getur haft jákvæð áhrif á líðan annarra með litlum en mikilvægum verkum í daglegu lífi.
Í ár er áhersla Guls september á ungt fólk. Markmiðið er að ná til ungmenna þar sem þau eru stödd, meðal annars í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi, félagsstarfi og á samfélagsmiðlum. Jafnframt verður lögð áhersla á að virkja tónlistar- og kórasamfélagið og skapa fjölbreytt tækifæri til þátttöku.
Sveitarfélagið hvetur því skóla, vinnustaði, íþróttafélög, félagasamtök, menningarstarf og íbúa til að taka þátt í átakinu með þeim hætti sem hentar hverjum og einum.
Það þarf ekki að vera flókið að taka þátt. Til dæmis má:
💛 klæðast gulu eða skreyta með gulu
💛 bjóða upp á gular veitingar
💛 deila efni á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #gulurseptember
💛 vekja athygli á semíkommunni (;) sem táknar von, seiglu og framhald
💛 hvetja hvort annað að sækja viðburði sem fram fara í Gulum september.
💛 halda gulan dag, göngu eða samverustund
En hvað er gulur dagur?
Þátttaka í Gulum september fellur vel að markmiðum Heilsueflandi samfélags þar sem áhersla er lögð á að skapa umhverfi sem styður við heilsu, vellíðan og félagslega þátttöku allra íbúa. Með því að sameinast um einfaldar aðgerðir og jákvæð skilaboð getum við styrkt samfélagið okkar og aukið meðvitund um mikilvægi geðræktar.
Nánari upplýsingar, dagskrá og kynningarefni má finna á www.gulurseptember.is.
Þeir sem vilja auglýsa gula viðburði hér á síðunni eða samfélagsmiðlum sveitarfélagsins er bent á að hafa samband við fulltrui@skagastrond.is og því er komið áfam til viðeigandi aðila.
Við hvetjum alla til þess að taka þátt og leggja sitt af mörkum til að gera september gulan. Stundum getur lítil athöfn, hlý orð eða einföld áminning um að við skiptum hvert annað máli haft meiri áhrif en okkur grunar. 💛