Gæsluvöllur

Gæsluvöllur

verður starfræktur á leikvelli Barnabóls

10. júlí – 3. ágúst 2012

 

Gæsluvöllurinn verður opinn virka daga kl 13 - 16.

Börn á aldrinum tveggja til sex ára geta sótt völlinn gegn 400 kr greiðslu fyrir hvert skipti.

 

Í leikskólanum verður opin salernisaðstaða fyrir börnin en að öðru leyti verður fyrst og fremst um gæslu utandyra að ræða.

 

Æskilegt er að börnin taki með sér nesti og er sérstaklega bent á að öll leikföng sem þau kunna að taka með sér eru á eigin ábyrgð.

 

Þrátt fyrir áætlaðan opnunartíma er allur réttur áskilinn til að leggja þetta þjónustutilboð niður ef aðsókn að gæsluvellinum verður lítil eða engin.

 

                                      Sveitarstjóri