Gagn og gaman!

List- og verkgreinakennarar Húnavatnssýslna og aðrir áhugasamir voru boðaðir á fund þriðjudaginn 13. október í Grunnskóla Húnaþings vestra, Hvammstanga.  Markmið fundarins var að ræða saman, skiptast á verkefnum,  hugmyndum og kennsluaðferðum.  Kennurunum var gert að koma  með kennsluáætlanir, verkefni, bækur og önnur gögn sem tengjast greininni og reynst hafa vel í kennslunni.  Allir höfðu margt fram að færa og jókst því hugmyndabanki kennaranna mikið. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Oddný Helga Sigurðadóttir, kennari.

Námskeiðið var haldið á vegum Fræðsluskrifstofu A- Hún.

Mynd: Þátttakendur og  Leiðbeinandi.