Gangnaseðill 2005

      GANGNASEÐILL 2005

 

Það tilkynnist hér með að haustgöngur fara fram laugardaginn 17. september sé fært leitarveður, ella þá næsta leitarfæran dag.

 

Göngurnar verða unnar af hestamannafélaginu Snarfara.

Gangnaforingi er Rögnvaldur Ottósson.

Réttarstjóri í fjárrétt er Sigrún Guðmundsdóttir en Rögnvaldur Ottósson í hrossarétt.

 

1. Göngur: Menn frá Hestamannafélaginu Snarfara smali svæðið frá Urriðalæk vestur yfir flárnar og Grasás yfir Ytri-Botnalæk í veg fyrir gangnamenn úr Skagabyggð. Heiðina vestan sýslumarka eftir venju til réttar, einnig Borgina utan skógræktargirðingar. Gert er ráð fyrir að gangnamenn úr Skagabyggð smali svæðið norðan Brandaskarðsgils milli Stallabrúna og Hrafnár til norðurs.

            Fé og hross úr heiðinni og Borginni og úr heimahögum sé rekið að Spákonufellsrétt laugardaginn 17. september og réttað samdægurs. Ber eigendum að vera þar til staðar og hirða búfé sitt svo að réttarstörfum verði lokið fyrr en dimmt er orðið.

 

2. Eftirleit fer fram laugardaginn 24. september verði bjart veður ella næsta leitarfæran dag. Þær annast Ásgeir Axelsson.

 

3. Fjárskil verða sunnudaginn 2. október á Sölvabakka á þau mæti Ásgeir Axelsson fyrir Höfðahrepp.

 

4. Útréttir:

  • Í fyrri og seinni Fossárrétt hirðir Gunnlaugur Sigmarsson
  • Í fyrri Vindhælisrétt hirðir Ásger Axelsson
  • Í seinni Vindhælisrétt hirðir Eðvarð Ingvason

 

5. Smölun heimalanda: Fjáreigendur eru hvattir til að hreinsa vel landspildur sínar af öðru búfé en þeirra eigin fyrir  göngur sem og eftirleit, svo að göngur og réttir geti orðið árangursríkar.

 

Að öðru leyti en hér er tekið fram eru skyldur og réttindi manna samkvæmt fjallskilareglugerð fyrir

Austur - Húnavatnssýslu.

 

Greiðslur til og frá fjallskilasjóði fara fram hjá sveitarstjóra.

 

Skagaströnd 11. september 2005                                   

 

 

Í umboði Hreppsnefndar Höfðahrepps               

 

_________________________________                 

            Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri.