Gangnaseðill í Spákonufellsborg 2019

Gangnaseðill í Spákonufellsborg 2019

Fyrri haustgöngur fara fram föstudaginn 6. september. Seinni haustgöngur fara fram föstudaginn 13. september. Eftirleitir verða föstudaginn 20. september.

Gangnaforingi er Jón Heiðar Jónsson.

Réttarstjóri í báðum réttum er Einar Haukur Arason.

Farið fram Hrafndal og fram í Ármót, vestur Brandaskarð með hreppagirðingu að norðan. Spákonufellsborg að sunnanverðu að Hrafná að Fellsrétt. Undanskilin er skógræktargirðing. Í borgina leggi eftirtaldir til menn:

  Fyrri göngur Seinni göngur

Jón Heiðar Jónsson

Sigþór Hallgrímsson

Magnús Guðmannsson

Arnar Páll Guðjónsson

Jóhann Ásgeirsson

Vignir Sveinsson

Rúnar Jósefsson

Árni Halldór Eðvarðsson

2

2

1

1

1

1

1

1

1

2

1

 

1

1

1

1

     
     
     
     
     
     

Í eftirleit fara fjórir menn. Þær annast Jón Heiðar Jónsson.

 Með vísan til 20. greinar fjallskilareglugerðar: „Hafi búfjáreigandi engan hæfan mann til fjallskila og getur eigi útvegað hann, skal hann tilkynna hreppsnefnd eða fjallskilastjóra það skriflega fjórum dögum áður en fjallskilin eiga að vinnast, en þessir aðilar útvega mann eða annað sem vantar, svo sem hesta eða fæði, og borgar þá búfjáreigandi allan kostnað, sem af fjallskilum leiðir, án tillits til mats á þeim“. 

Að öðru leyti en hér greinir fer um skyldur og réttindi manna eftir fjallskilasamþykkt fyrir Austur- Húnavatnssýslu nr. 299/2009.

Fjallskilanefnd Skagabyggðar, Skagabúð 27. ágúst 2019.