Gleðibankinn auglýsir

Gleðibankinn stendur fyrir spurningakeppni á netinu á sunnudaginn. Notast verður við Kahoot forritið í spurningaleiknum.

Allir Skagstrendingar og nágrannar þeirra geta tekið þátt í spurningakeppninni.

Keppnin verður sunnudaginn 6. desember kl. 17:00 og verður opnað fyrir slóðina inn á forritið kl. 16:45.

Að þessu sinni verða 30 spurningar og þrír stigahæstu fá verðlaun.

Keppendur þurfa að hafa bæði tölvu/spjaldtölvu og snjallsíma til að geta tekið þátt.

Leiðbeiningar:

1. Opnaðu slóðina: https://youtu.be/eCdzG2g4xJM í tölvunni þinni eða leitaðu að Kahoot Gleðibankans á youtube og þá birtist talnaruna

2. Sláðu inn kahoot.it í símanum þínum og settu þar inn talnarununa sem kom upp á tölvuskjánum

3. Þú þarft að keppa undir einhverju nafni. Settu það inn í símann.

4. Spurningarnar birtast í tölvunni/spjaldtölvunni. Hver spurning hefur fjögur svör sem birtast síðan í símanum þínum í fjórum mismunandi litum. Aðeins eitt svaranna er rétt.

5. Ýttu á þann lit í símanum þínum sem passar við rétt svar.

6. Athugaðu að þú hefur aðeins 30 sekúndur til að svara og því fyrr sem þú svarar rétt þeim mun fleiri stig færðu fyrir spurninguna.

Ef vel tekst til er aldrei að vita nema fleiri spurningakeppnir verði fram til jóla.

Tökum þátt og lyftum okkur upp í skammdeginu.

Bankastjórar Gleðibankans