Gleðibankinn Þorra - Kahoot

 

                                     Spurningakeppni á þorra

                         sunnudaginn 31. janúar 2021, kl. 17:00

 

Gleðibankinn stendur fyrir spurningakeppni á netinu á sunnudaginn. Notast verður við Kahoot forritið í spurningaleiknum.

Allir Skagstrendingar og nágrannar þeirra geta tekið þátt í spurningakeppninni.

Opnað verður fyrir slóðina inn á forritið kl. 16:45. Að þessu sinni verða 30 spurningar og þrír stigahæstu fá verðlaun.

Keppendur þurfa að hafa bæði tölvu/spjaldtölvu og snjallsíma til að geta tekið þátt.

Leiðbeiningar:

  1. Opnaðu slóðina: https://youtu.be/GHJSHrfxT2w í tölvunni þinni eða leitaðu að Kahoot Gleðibankans á youtube og þá birtist talnaruna
  2. Sláðu inn kahoot.it í símanum þínum og settu þar inn talnarununa sem kom upp á tölvuskjánum
  3. Þú þarft að keppa undir einhverju nafni. Settu það inn í símann.
  4. Spurningarnar birtast í tölvunni/spjaldtölvunni. Hver spurning hefur fjögur svör sem birtast síðan í símanum þínum í fjórum mismunandi litum. Aðeins eitt svaranna er rétt.
  5. Ýttu á þann lit í símanum þínum sem passar við rétt svar.
  6. Athugaðu að þú hefur aðeins 30 sekúndur til að svara og því fyrr sem þú svarar rétt þeim mun fleiri stig færðu fyrir spurninguna.

 

Tökum þátt og lyftum okkur upp í skammdeginu.

 

Bankastjórar Gleðibankans