Góð aflabrög og aukin umsvif um Skagastrandarhöfn gleðja Skagstrendinga

Góð aflabrög og aukin umsvif um Skagastrandarhöfn gleðja Skagstrendinga

Á árum áður tíðkaðis að Norðlendingar yfirgáfu heimili sín og fjölskyldur og fóru á vetrarvertíð suður með sjó. Húsmæður sátu eftir og gættu bús og barna yfir erfiðasta tíma ársins. Skagstrendingar bjuggu lengi við slíkar aðstæður.

Í haust hafa hins vegar Suðurnesjamenn, ásamt fleirum, nýtt Skagastrandarhöfn umtalsvert til landana og því má kannski segja dæmið hafi snúist við. Að sjálfsögðu gleðjast Skagstrendingar mjög yfir auknum umsvifum um höfnina sína. Mestu munar þar um skip Vísis hf sem eftir nokkurt hlé hefur aftur verið beint til löndunar á Skagaströnd, enda samgöngur góðar og tiltölulega stutt að sækja á gjöful fiskimið.

Á meðfylgjandi mynd má sjá samanburð á löndunartölum um Skagastrandarhöfn frá 1. september til 24. nóvember á árabilinu 2017-2021.

Myndin sýnir að í ár hafa landanir á þessu tímabili náð yfir 4000 tonn og magnið er umtalsvert meira en verið hefur undanfarin ár!

Skagstrendingar fagna þessu auðvitað og vonast til að aðbúnaður á Skagaströnd, þjónusta hafnarinnar og Fiskmarkaðs Íslands sé með þeim hætti að áframhald geti orðið á.