Á dögunum barst Tónlistarskóla A.-Hún. einstaklega góð og kærkomin gjöf þegar Minningarsjóður hjónanna frá Garði og Vindhæli gaf skólanum rafmagnspíanó ásamt píanóstól.
Gjöfin kemur sér afar vel fyrir skólann og mun nýtast vel í kennslu og öðru tónlistarstarfi innan hans. Tónlistarskóli A.-Hún. færir Minningarsjóðnum innilegar þakkir.
Á myndinni leikur Anna Lísebet, píanónemandi við skólann, á nýja hljóðfærið.