Golfkennsla

Golfkennsla

Blönduós og Skagaströnd.

Árni Jónsson, golfkennari verður með golfkennslu dagana 7. – 11. júní nk.

Boðið verður upp á barna- og unglingahópa, byrjendur og lengra komna. Kennslan þessa 5 daga kostar 3000 krónur fyrir börn og unglinga.

Einnig verður fullorðinskennsla, byrjendur og lengra komnir.

Golfklúbbarnir hafa ákveðið að bjóða fullorðnum nýliðum í tvær kennslustundir og hvetjum við alla sem hafa áhuga að nýta sér þetta tækifæri.

Skráning á Blönduósi er hjá Jóhönnu á netfangið jgjon@mi.is og á Skagaströnd hjá Dagnýju dagny@marska.is eða Guðrúnu Pálsd.pannug@simnet.isí síðasta lagi þann 1. júní næstkomandi.

Nánari tímasetningar verða sendar út þegar skráningu lýkur.

Golfklúbburinn Ós og Golfklúbbur Skagastrandar