Gospeltónleikar á morgun og sunnudag

Kirkjukór Hólaneskirkju á Skagaströnd minnir á gospeltónleikanna í Hólaneskirkju á morgun kl. 17. Stjórnandi kórsins er góðvinur Skagastrandar, Óskar Einarsson, sem hingað kemur ásamt hljómsveit og gestasöngvurum.

Tónleikarnir verða haldnir á þessum stöðum um helgina:

Hólaneskirkju Skagaströnd, laugardaginn 23. október kl: 17:00
Miðgarði Skagafirði  sunnudaginn  24. október kl: 15:00
Hvammstangakirkju sunnudaginn 24. október kl: 20:00

Í hljómsveitinni eru Brynjólfur Snorrason og Jóhann Ásmundsson og kynnir er sr. Guðmundur Karl Brynjarsson fyrrverandi sóknarprestur á Skagaströnd.
Miðaverðið er 1.500 kr fyrir fullorðna og 500kr fyrir börn á grunnskólaaldri (ath. ekki er posi á staðnum).

Styrktaraðilar tónleikanna eru Menningarráð Norðurlands vestra og  Minningarsjóður um hjónin frá Vindhæli og Garði