Harbour og Sunnuvegur 1 fá umhverfisviðurkenningar

Það eru annars vegar veitingahúsið Harbour og svo hins vegar eigendur Sunnuvegar 1 sem fá umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir árið 2026. Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, oddviti sveitastjórnar, og Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, afhentu verðlaunin á fallegu haustkvöldi síðasta þriðjudag.

Viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis fór til veitingahússins Harbour. Það voru þau Hafdís Ásgeirsdóttir og Stefán Sveinsson sem tóku við verðlaununum fyrir hönd Harbour. 

Viðurkenning fyrir snyrtilegan garð fór til Guðbjargar Viggósdóttur og Magnúsar Jónssonar fyrir fallega garðinn við hús þeirra að Sunnuvegi 1.

Það skemmtilega fyrirkomulag er á umhverfisviðurkenningunum að verðlaunahafar síðasta árs sjá um valið. Þau Hafdís, Stefán, Guðbjörg og Magnús fara því með það vandasama hlutverk á árinu 2027.

Ljósmyndirnar tók Hafdís Hrefna Birgisdóttir.